Herrahellirinn ehf
490920-1020
Borgarbraut 36-38
310 Borgarnes
VSK nr.: 138822

Með því að ganga frá greiðslu samþykkir þú skilmála okkar.

 

SENDINGARMÁTI

Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun, nema annað sé tekið sérstaklega fram. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Herrahellirinn ehf. ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Herrahellirinn ehf. til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Frí heimsending er á pöntunum yfir 8000 kr.

VERÐ Á VÖRU OG SENDINGAKOSTNAÐUR.

Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. 

Við sendum allar vörur með Íslandspósti.

Sendingakostnaður fer eftir verðskrá frá Íslandspósti.

 

AÐ SKIPTA OG SKILA VÖRU

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. 

Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í eitt ár frá útgáfudegi. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

GÖLLUÐ VARA.

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist.

Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

TRÚNAÐUR.

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

LÖG OG VARNARÞING.

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Íslenskum dómstóli.